Svalahandriðin okkar koma frá finnska framleiðandanum LUMON, en þau eru sérstaklega hönnuð til að taka við svalalokun, en eru stílhrein og nútímaleg. Hægt er að fá LUMON póstahandrið og svo einnig póstalaus handrið. Einnig bjóðum við uppá álskúffuhandrið og punkfestingahandrið.
Hefðbundin póstahandrið glerjuð með öryggisgleri, sem uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til svalahandriða. Þessi handrið eru fest framan á svalaplötuna og hægt að panta í hvaða RAL lit sem er. Hægt er að festa LUMON svalalokun beint ofan á handlistann og allt í stíl.
Ný kynslóð svalahandriða þar sem engir eða fáir póstar eru til staðar. Gæðakerfið LUMON sér til þess að handriðin halda fullum styrk, en þessi handrið eru sérstaklega stílhrein og lítið sem ekkert sem byrgir útsýni út frá svölunum.
Ál og Gler býður uppá nokkrar tegundir af álskúffuhandruð frá leiðandi framleiðanda í Evrópu. En framleiðandinn leggur áherslu á stöðuga tækniþróun, gæði og ánægða viðskiptavini.
Notast er við 16-24mm hert samlímt öryggisgler
Allt að 4kN/fm
Áltegund er EN AW6060
Þessi gildi eru grunnurinn að þeim góða árangri sem þessi vara hefur náð.
Fljótlegt og auðvelt að stilla nákvæmlega
Álskúffan er með eigið stillikerfi sem gerir það kleift að stilla glerið nákvæmlega í skúffunni á örskammri stund.
Ending er forgangsatriði, jafnt fyrir okkur sem viðskiptavini okkar. Þess vegna eru innri hreyfanlegir hlutar smíðaðir úr sólarvörðu harðplastefni ásamt stilliskrúfum úr rafhúðu Zink-Nikkel stáli til að veita framúrskarandi tæringarvörn.
Við þróun þessa kerfis var mikill fjöldi frumgerða prófaður ítarlega. Niðurstaðan er hröð og nákvæm stilling á glerinu sem framkvæmd er á öruggan hátt innan frá svölunum með einungis sexkanti, og það tekur aðeins nokkrar sekúndur með rafdrifnum skrúfjárni. Styrkur kerfisins, sem þolir allt að 4kN/fm álag með venjulegu hertu samlímdu gleri, gerir þessa lausn að einni þeirri eftirsóttustu á markaðnum og er kerfi sem stenst allt sem það verður fyrir, svo sem vind, rigningu, seltu og UV-geisla.
Þessa álskúffu er bæði hægt að festa framan á svalaplötu eða þá beint ofan á hana.
Samlímt hert öryggisgler
16mm – allt að 3kN/fm, hámarkshæð 1200 mm
20mm – allt að 4kN/fm, hámarkshæð 1400 mm
24mm – allt að 4kN/fm, hámarkshæð 1400 mm
Hægt er að fá stærri útfærslu af álskúffunnu sem hlykur þá tæpa 23 sm af svalaplötunni, einnig er hægt að lyfta þessarri skúffu upp fyrir brún svalaplötu.
Þetta er okkar fyrirferðarlitla en afar sterka glerhandriðskerfi. Með aðeins 80 mm hæð er þetta tæknilega meistaraverk ógnarsterkt og afar auðvelt í uppsetningu. Glerið er fest á nokkrum sekúndum með fleygum. 4500 uppfyllir allar kröfur fyrir íbúðarhúsnæði og heimili á sama tíma og það er lítið og lítt áberandi. Kerfið er vottað fyrir 2kN.
Glerstærðir er 10mm 12 mm og 16 mm
Hert og samlímt öryggisgler
Heimilisfang: Trönuhraun 8, Hafnarfjörður, 220
Netfang: aloggler@aloggler.is
Sími: 534 5453
Mánudaga til Fimmtudags: 09:00 – 17:00
Föstudaga: 09:00 – 16:00
Helgar: Lokað