Einnig er hægt að spara orkuna, þó nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að svalalokanir minnka orkukostnað töluvert, það er ekki bara betra fyrir umhverfið heldur líka veskið.
Opnanlegu lokanirnar okkar halda frá vindi, ryki, fuglum, snjó og regni en heldur sólinni inni. Þannig eyðir þú minni tíma og kostnaði við viðhald og sérð til þess að vernda svalirnar að innan.
Lokanirnar eru svokallaðar gustlokanir og útiloka ekki regn og snjó alveg þar sem svalalokanirnar eru opnanlegar, þannig verður alltaf örlítill leki á dögum þar sem það rignir ekki beint niður.
Svalalokanirnar minnka hljóðmengun um allt að 50% svo þú getur slakað á og aukið svefnáægju á sama tíma. Þú getur einnig sofið betur vitandi það að hert glerin eru algjörlega örugg, þá sérstaklega fyrir þá sem eru á neðstu hæðum.
Svalalokanir frá Ál og Gler leyfir þér að nýta svalirnar og skapa þetta aukapláss sem okkur vantar alltaf á heimilinu. Svalirnar verða alltaf úti og sjaldnast partur af stofunni en með lokun er hægt að nýta rýmið fyrir fjöldan allan af möguleikum, sama hvernig viðrar og út allt árið.
Morgunmatur á svölunum um vordægur, heitur kaffibolli á meðan rigningin lekur niður glerin eða rómantískur kvöldverður yfir marglita sólsetri um haustið, nokkrir kílómetrar á æfingarhjólinu meðan snjókornin falla á jörðina eða hvað sem þig lystir. Nýttu loksins svalirnar allt árið.
Við trúum því að svalirnar eigi að vera nýtanlegt rými allt árið og það besta er að það svæði er utan við íbúðina, sem gerir það að verkum að hægt er að kúpla sig frá og slaka á og njóta útsýnisins. Þannig er hægt að skapa glæsilegt nýtt rými og möguleikarnir eru nánast endalausir.
Svalirnar geta orðið staður þar sem þú stjórnar árstíðunum, þar sem vorið kemur snemma og veturinn miklu seinna. Skapaðu sérstakt rými í þínu heimili, þar sem þú getur notið þín hvernig og hvenær sem er. Hver segir að það þurfi að fara úr þægindahringnum.
Og auðvitað þar sem svalirnar eru opnanlegar er hægt að renna glerjunum til hliðar fyrir ferskt loft og sólskin.
Einnig er hægt að spara orkuna, þó nokkrar rannsóknir hafa sýnt fram á að svalalokanir minnka orkukostnað töluvert, það er ekki bara betra fyrir umhverfið heldur líka veskið.
Heimilisfang: Trönuhraun 8, Hafnarfjörður, 220
Netfang: aloggler@aloggler.is
Sími: 547 6888
Mánudaga til Fimmtudags: 09:00 – 17:00
Föstudaga: 09:00 – 16:00
Helgar: Lokað